Kynning á MedicAlert. 

Laeknadagar

Vikuna 18. til 22. jan. var MedicAlert með kynnningu á Læknadögum í kaffi- og sýningarsal Læknadaga á Hilton hótelinu með myndasýningu á tölvuskjá.  Læknadagar eru stærsta ráðstefna íslenskra lækna hvert ár.   Til baka

Magnús Steingrímsson heiðraður.

Heidradur.jpg

Á fjölmennum jólafundi MedicAler á Íslandi nýlega var Magnúsi Steingrímssyni veittur heiðursskjöldur frá Alþjóðasamtökum MedicAlert.  Þar kom fram þakklæti fyrir það einstaka starf sem hann hefur unnið fyrir MedicAlert á Íslandi.  Á síðastliðnum 20 árum hefur hann í sjálfboðavinnu grafið á 75% af öllum áletrunum frá upphafi af mikilli samviskusemi og útsjónarsemi.  Á myndinni eru Magnús Steingrímsson, Lkl. Vála og Magnús B. Einarson, formaður MedicAlert á Íslandi, Lkl. Mosfellsbæjar.  Til baka